
Grafarvogssöfnuður var stofnaður í júní 1989 og hélt guðsþjónustur sínar í félagsmiðstöð þar til kirkjan reis. Sr. Vigfús Þór Árnason var fyrsti sóknarprestur hans. Tónleikarnir eru til minningar um hann og Elínu Pálsdóttur, konu hans. Fram koma Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, ásamt Gissuri Páli Gissurarsyni, Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni og Matthíasi Matthíassyni, og með þeim syngja Kór Grafarvogskirkju, Vox Populi og Frímúrarakórinn. Stjórnendur eru Guðný Einarsdóttir, Lára Bryndís Eggertsdóttir og Jónas Þórir. Andvirði miðanna rennur óskipt í orgelsjóð safnaðarins. Miðar fást í kirkjunni sjálfri, á opnunartíma, síðustu dagana fyrir tónleikana.
Flytjendur
- Sigrún Hjálmtýsdóttireinsöngvari
- Gissur Páll Gissurarsoneinsöngvari
- Jóhann Friðgeir Valdimarssoneinsöngvari
- Matthías Matthíassoneinsöngvari
- Kór Grafarvogskirkjukór
- Vox Populikór
- Frímúrarakórinnkór
- Guðný Einarsdóttirstjórnandi
- Lára Bryndís Eggertsdóttirstjórnandi
- Jónas Þórirstjórnandi