← Allir listamenn

Organisti

Lára Bryndís Eggertsdóttir

Organisti Grafarvogskirkju og stjórnandi Vox Populi. Hún hóf píanónám ung og fjórtán ára gömul lék hún við guðsþjónustur í Langholtskirkju. Árið 2002 lauk hún einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar hjá Herði Áskelssyni. Næstu tíu ár bjó hún í Danmörku og lauk cand. mus. prófi frá Konunglega tónlistarháskólanum í Árósum, þar sem Ulrik Spang-Hanssen kenndi henni á orgel og Lars Colding Wolf á sembal. Hún var organisti við Sønderbro kirkju í Horsens í fimm ár og hefur leikið á sembal með barokksveitinni BaroqueAros í Árósum frá 2015. Haustið 2018 sneri hún heim frá Danmörku og varð organisti við Hjallakirkju í Kópavogi, áður en hún tók við starfinu í Grafarvogskirkju.

Framundan

Ekkert framundan.