Söngvari
Gissur Páll Gissurarson
Tenór sem hóf feril sinn ellefu ára gamall í titilhlutverkinu í Oliver Twist í Þjóðleikhúsinu. Formlegt söngnám hóf hann árið 1997 við Söngskólann í Reykjavík hjá Magnúsi Jónssyni og fór árið 2001 til náms við Conservatorio G.B. Martini í Bologna hjá Wilmu Vernocchi. Að því loknu lærði hann hjá Kristjáni Jóhannssyni. Hann steig fyrst á óperusvið sem einsöngvari árið 2003 og hefur síðan sungið á Íslandi, í Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Ítalíu, Japan og Bandaríkjunum. Hann hlaut þriðju verðlaun í alþjóðlegu söngvarakeppninni Flaviano Labò árið 2005 og önnur verðlaun ásamt verðlaunum gagnrýnenda í Brescia árið 2006. Fyrsti geisladiskur hans, Ideale, kom út árið 2010 með íslenskum sönglögum og napólíönskum lögum, og árið 2012 var hann valinn karlsöngvari ársins í flokki sígildrar tónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir Rodolfo í La bohème hjá Íslensku óperunni. Hann kennir söng við Söngskólann í Reykjavík.

Framundan
