Söngkona
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sópransöngkona, fædd í Reykjavík 8. ágúst 1955 og alin upp í Vesturbænum. Hún er jafnan kölluð Diddú. Ferillinn hófst í dægurtónlist, með Spilverki þjóðanna á árunum 1975 til 1978 og Brunaliðinu 1978 til 1980. Árið 1984 lauk hún ASGM-gráðu í einsöng og kennslufræðum frá Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum og sótti einkatíma á Ítalíu 1987 til 1988. Fyrsta óperuhlutverk hennar var dúkkan Olympia í Ævintýrum Hoffmanns í Þjóðleikhúsinu. Hjá Íslensku óperunni hefur hún sungið Súsönnu í Brúðkaupi Fígarós, Gildu í Rigoletto, Papagenu og Næturdrottninguna í Töfraflautunni, Lúsíu í Lucia di Lammermoor, Víolettu í La traviata, Adínu í Ástardrykknum og Rósalindu í Leðurblökunni, auk þriggja hlutverka í Niflungahring Wagners og Kæthe í Le Pays eftir J.G. Ropartz á Listahátíð árið 2006. Hún hefur oft sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og með hljómsveitum víða um Evrópu og í Bandaríkjunum, hljóðritað fjóra geisladiska með Sinfóníunni og sungið inn á rúmlega sjötíu hljómplötur. Hún kennir við Söngskóla Sigurðar Demetz.
Framundan

