Tenór
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Tenór, fæddur í Reykjavík 12. desember 1967. Hann lærði ungur á píanó og trompet í Tónmenntaskólanum og Tónlistarskólanum í Reykjavík. Söngnám hóf hann árið 1995 við Söngskólann í Reykjavík hjá Garðari Cortes og lærði síðar hjá Magnúsi Jónssyni, Bergþóri Pálssyni og Þuríði Pálsdóttur, uns hann lauk áttunda stigi vorið 1998. Sama ár fór hann til Mílanó og lærði hjá Giovönnu Canetti við Conservatorio Giuseppe Verdi, auk einkatíma hjá Angelo Bertacchi í Modena og Franco Ghitti í Brescia. Meðal hlutverka hans eru Alfredo í La traviata, Hertoginn í Rigoletto, Manrico í Il trovatore, Radames í Aidu, Cavaradossi í Toscu, Pinkerton í Madama Butterfly, Turiddu í Cavalleria rusticana og Canio í Pagliacci. Hann hefur gefið út fjóra hljómdiska, þann síðasta, Sacred Arias, í nóvember 2010, syngur með Frostrósum og er einn stofnenda Tenóranna þriggja.
Framundan
Ekkert framundan.