← Allir listamenn

Vox Populi

Kór ungs fólks á aldrinum átján til fertugs við Grafarvogskirkju. Meginverkefni hans er að leiða sönginn við léttar guðsþjónustur klukkan eitt á sunnudögum í Kirkjuseli safnaðarins í Spönginni yfir vetrarmánuðina, og hann syngur auk þess á jóla- og vortónleikum og við önnur tækifæri. Efnisskráin er fjölbreytt. Kórinn æfir í Grafarvogskirkju á miðvikudagskvöldum og stjórnandi hans er Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti kirkjunnar.

Framundan

Ekkert framundan.