← Allir listamenn
Frímúrarakórinn
Frímúrarakórinn var stofnaður 30. janúar 1993 og starfar innan Frímúrarareglunnar á Íslandi. Fyrstu opinberu tónleikar hans voru haldnir í Regluheimilinu í Kaupmannahöfn í apríl 1997 og voru endurteknir skömmu síðar í Regluheimilinu í Reykjavík, en frá þeim tíma hefur kórinn haldið vortónleika í Regluheimilinu í Reykjavík á hverju ári. Megintilgangur kórsins er að syngja á fundum og hátíðum innan Frímúrarareglunnar og að safna saman þeirri tónlist og ljóðlist sem samin hefur verið til flutnings í stúkunum, auk þess sem hann hefur hljóðritað nokkur þeirra laga. Núverandi stjórnandi hans er Friðrik S. Kristinsson.
Framundan
Ekkert framundan.