← Allir listamenn
Söngvari
Matthías Matthíasson
Söngvari, fæddur árið 1975 og uppalinn á Dalvík, jafnan kallaður Matti Matt. Ungur söng hann í söngleikjum, meðal annars Hárinu og Jesus Christ Superstar, þar sem hann fór með hlutverk Péturs og hlaut fyrir leik sinn tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 1995. Árið 1996 fékk Magnús Scheving hann til að syngja fyrir Íþróttaálfinn í Latabæ, fyrst á sviði og síðan í sjónvarpsþáttunum, bæði á íslensku og ensku. Hann hefur sungið með hljómsveitunum Pöpum og Reggae on Ice. Árið 2011 var hann söngvari Vina Sjonna, sem fluttu Coming Home fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Framundan
Ekkert framundan.