← Allir listamenn
Kór Grafarvogskirkju
Kirkjukór sem hefur starfað frá því að Grafarvogssöfnuður var stofnaður árið 1989. Hann syngur við athafnir og helgihald í kirkjunni og við messur á hjúkrunarheimilinu Eir, og heldur að jafnaði tvenna tónleika á ári með kirkjulegri tónlist. Í honum eru tuttugu til þrjátíu manns og organisti kirkjunnar stjórnar honum. Við venjulega sunnudagsmessu syngja um átta, svo ekki þurfa allir að mæta hvern sunnudag, en oftar en ekki syngur kórinn allur. Æft er á miðvikudagskvöldum. Kórinn hefur farið í tónleikaferðir til Tékklands árið 1996, Ítalíu 1999, Englands 2003, Finnlands vorið 2006, Þýskalands 2016, Svíþjóðar haustið 2018 og aftur til Þýskalands sumarið 2023.
Framundan
Ekkert framundan.