← Allir listamenn

Organisti

Guðný Einarsdóttir

Organisti Grafarvogskirkju, fædd í Reykjavík árið 1978. Hún stundaði píanónám frá unga aldri og lauk prófi frá tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík og orgelnámi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar, þar sem Marteinn H. Friðriksson var aðalkennari hennar. Vorið 2006 lauk hún kirkjutónlistarnámi frá Konunglega danska tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn og lærði þar meðal annars hjá Lasse Ewerlöf og Bine Bryndorf. Veturinn 2006 til 2007 var hún organisti við kirkju danska safnaðarins í París og sótti samhliða tíma hjá Eric Lebrun og Sophie-Véronique Cauchefer-Choplin. Hún hefur einnig sótt orgelnámskeið hjá Michael Radulescu, Hans-Ola Ericsson og Olivier Latry. Á námsárunum í Kaupmannahöfn var hún meðal stofnenda kammerkórsins Stöku og fyrsti stjórnandi hans, og hún hefur síðan stjórnað Kordíu og kórum Fella- og Hólakirkju, Hjallakirkju og Háteigskirkju. Nú stýrir hún Perlukór Háteigskirkju.

Framundan

Ekkert framundan.