
Frelsissveit Íslands, sem Haukur Gröndal hefur stýrt frá árinu 2010, leikur nýjan píanókonsert eftir hann, saminn fyrir Davíð Þór Jónsson og sveitina. Verkið var frumflutt á Djasshátíð Reykjavíkur í Norðurljósum í ágúst. Það er um fimmtíu mínútur í sjö þáttum, þar sem skiptast á skrifaðir kaflar og frjáls spuni. Hljóðfæraleikararnir móta framvinduna saman á sviðinu. Þau eru átta: Davíð Þór á píanó, Sólveig Magnúsdóttir á flautu, Haukur Gröndal á klarínettu og saxófón, Óskar Guðjónsson á saxófón, Ólafur Jónsson á saxófón og bassaklarínettu, Guðmundur Pétursson á gítar, Birgir Steinn Theódórsson á bassa og Matthías MD Hemstock á trommur.
Flytjendur
- Frelsissveit Íslandshljómsveit
- Davíð Þór Jónssonpíanó
- Sólveig Magnúsdóttirflauta
- Haukur Gröndalklarínetta og saxófónn
- Óskar Guðjónssonsaxófónn
- Ólafur Jónssonsaxófónn og bassaklarínetta
- Guðmundur Péturssongítar
- Birgir Steinn Theódórssonbassi
- Matthías MD Hemstocktrommur