Píanóleikari
Davíð Þór Jónsson
Píanóleikari og tónskáld, fæddur á Seyðisfirði árið 1978 og alinn upp á Akranesi frá þriggja ára aldri. Hann var níu ára þegar hann fór í fyrsta píanótímann í Tónlistarskóla Vesturlands. Eftir það lærði hann á saxófón í tíu ár. Hann stundaði nám við Tónlistarskóla FÍH, fór þaðan í skiptinám til Þrándheims og útskrifaðist vorið 2001. Fyrsta sólóplata hans, Rask, kom út árið eftir. Hann hefur leikið og hljóðritað með fjölda tónlistarmanna, meðal annars Mugison, Skúla Sverrissyni og Jóeli Pálssyni, og á Íslensku tónlistarverðlaununum 2009 var hann valinn flytjandi ársins. Af samstarfi hans við myndlistarmenn ber hæst verk hans með Ragnari Kjartanssyni. Hann samdi og flutti tónlistina í myndbandsverkinu The End, framlagi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2009, og á Performa-hátíðinni í New York árið 2011 stjórnaði hann hljómsveit og söngvurum í verki Ragnars, Bliss, þar sem þriggja mínútna kafli úr Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart var fluttur í tólf klukkustundir samfleytt. Hann hefur samið tónlist fyrir fjölda leiksýninga og dansverka, meðal annars söngleikinn Leg, og fyrir kvikmyndirnar Hross í oss og Kona fer í stríð. Sú síðarnefnda er eftir Benedikt Erlingsson, og tónlistin í henni hlaut bæði Edduverðlaunin og Íslensku tónlistarverðlaunin. Hann hefur búið í Álafosskvos í Mosfellsbæ frá 2013 og var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2017.
Framundan
Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin?
Hallgrímskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
3.200 kr.≈ 23 EUR≈ 26 $≈ 37 CAD≈ 20 GBP≈ 174 DKK
Megas fyrir píanó og strengjakvartett
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
4.900 kr.≈ 36 EUR≈ 39 $≈ 56 CAD≈ 30 GBP≈ 267 DKK
Aðrir flytjendur

Saman á sviði: Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin?
Tómas Guðni Eggertsson
Organisti og píanóleikari
Næst: 4. des.
Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson
Haukur Gröndal
Klarínettu- og saxófónleikari
Næst: 2. des.

Saman á sviði: Megas fyrir píanó og strengjakvartett
Þórunn Ósk Marínósdóttir
Víóluleikari
Næst: 7. feb.

