Frelsissveit Íslands
Hljómsveit sem saxófón- og klarínettuleikarinn Haukur Gröndal stofnaði í ársbyrjun 2010 til að leika frumsamda íslenska tónlist. Hún hét í fyrstu Frelsissveit Nýja Íslands. Haukur útsetur fyrir hana tónlist eftir sjálfan sig og aðra. Hún er skipuð nokkuð ólíkum hópi frá einum tónleikum til annarra. Fyrsta plata hennar, Squiggle, var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Á Jazzhátíð Reykjavíkur 2020 flutti hún verk Hauks, Four Elements, sem var valið tónverk ársins í djassi. Sveitin sjálf var valin flytjandi ársins í flokki hópa. Raddlistamaðurinn Sverrir Guðjónsson er sérstakur verndari hennar. Í ágúst 2026 frumflutti hún í Norðurljósum píanókonsert sem Haukur samdi fyrir Davíð Þór Jónsson og sveitina, um fimmtíu mínútna verk í sjö þáttum.
Framundan
Ekkert framundan.
Aðrir flytjendur
Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson
Haukur Gröndal
Klarínettu- og saxófónleikari
Næst: 2. des.
Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson
Matthías MD Hemstock
Trommuleikari
Næst: 2. des.