← Allir listamenn

Trommuleikari

Matthías MD Hemstock

Trommuleikari, fæddur í Reykjavík árið 1967 og heitir fullu nafni Matthías Már Davíðsson Hemstock. Hann var níu ára þegar hann flutti með foreldrum sínum í Garðabæ og fór þá að tromma. Hann nam við Tónlistarskóla FÍH frá 1984 til 1988 og við Berklee College of Music í Boston frá 1989 til 1991 og sótti meðal annars námskeið hjá Dave Weckl. Hann hefur leikið allt frá rokki og poppi til klassískrar tónlistar, fyrst með hljómsveit Rúnars Júlíussonar á Keflavíkurflugvelli og síðar með Todmobil, Unun, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur og Caput og í söngleikjum á borð við Vesalingana, Kabarett og Evitu. Í djassi hefur hann leikið með Tómasi R. Einarssyni, Skúla Sverrissyni, Hilmari Jenssyni, Jóeli Pálssyni og Óskari Guðjónssyni, og með Óskari og bassaleikaranum Richard Andersson leikur hann í tríóinu NOR. Frá 2000 til 2012 vann hann raftónlist með Jóhanni Jóhannssyni. Á Íslensku tónlistarverðlaununum 1998 var hann valinn trommuleikari ársins. Hann hefur kennt á trommusett og slagverk frá 1991, sá um þann hluta aðalnámskrár tónlistarskóla sem snýr að trommusettinu og stóð fyrir útgáfu kennslubókar Péturs Östlund, Hringir innan hringja, á íslensku. Hann hefur kennt slagverk við Menntaskóla í tónlist frá stofnun skólans árið 2017 og verið stundakennari við Listaháskóla Íslands frá 2020.

Framundan

Aðrir flytjendur

  • Saman á sviði: Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett kynnir nýja plötu

    Haukur Gröndal

    Klarínettu- og saxófónleikari

    Næst: 2. des.

  • Saman á sviði: Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett kynnir nýja plötu

    Ólafur Jónsson

    Saxófónleikari

    Næst: 2. des.

  • Saman á sviði: Kvartett Nicolas Moreaux

    Snorri Sigurðarson

    Trompetleikari

    Næst: 9. des.

  • Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson

    Davíð Þór Jónsson

    Píanóleikari

    Næst: 5. des.