← Allir listamenn

Kontrabassaleikari

Birgir Steinn Theodórsson

Kontrabassaleikari, fæddur árið 1990. Á námsárunum í Tónlistarskóla FÍH lék hann í djasshljómsveitinni Kjass með Önnu Grétu Sigurðardóttur og fleiri skólafélögum. Hann lauk námi frá skólanum árið 2015 og hélt þá til framhaldsnáms í bassaleik við djassdeild Listaháskólans í Berlín. Síðan hefur hann leikið með fjölda íslenskra djassleikara. Hann er í Four Others, kvartett sem Haukur Gröndal stofnaði, með Ásgeiri Ásgeirssyni og Magnúsi Trygvasyni Eliassen, og hann hefur leikið á bassa og túbu með Frelsissveit Íslands. Hann leikur á kontrabassa á plötu Önnu Grétu, Star of Spring, sem þýska útgáfan ACT gaf út árið 2024. Fyrir árið 2025 var hann tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem flytjandi ársins í djassi.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur

  • Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson

    Davíð Þór Jónsson

    Píanóleikari

    Næst: 5. des.

  • Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson

    Ólafur Jónsson

    Saxófónleikari

    Næst: 2. des.

  • Sigurður Flosason leikur á saxófón, með gleraugu, á dökkum bakgrunni, svarthvít mynd.

    Saman á sviði: Kvartett Sigurðar Flosasonar

    Sigurður Flosason

    Saxófónleikari

    Næst: 6. des.

  • Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson

    Matthías MD Hemstock

    Trommuleikari

    Næst: 2. des.