← Allir listamenn

Gítarleikari

Guðmundur Pétursson

Gítarleikari og tónskáld, fæddur árið 1972 og alinn upp í Kleppsholti í Reykjavík. Hann lærði á píanó í tvö ár frá tíu ára aldri en sneri sér svo að gítarnum. Vorið 1987, þá fjórtán ára, vakti hann athygli á Músíktilraunum með Bláa bílskúrsbandinu og lék í kjölfarið í kosningasjónvarpi RÚV. Frá 1989 til 1993 lék hann blús með Vinum Dóra, Tregasveitinni og Blúsmönnum Andreu og með blúsmönnum frá Chicago á borð við Pinetop Perkins og Billy Boy Arnold þegar þeir komu til landsins. Á Íslensku tónlistarverðlaununum var hann valinn gítarleikari ársins þrjú ár í röð, 1993 til 1995, og plata hans Muzac kom út árið 1997. Hann lærði einnig á klassískan gítar um árabil og hefur leikið íslensk samtímaverk með Kammersveit Reykjavíkur. Þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands bað hann að leika gítarkonserta samdi hann sjálfur konsert fyrir rafgítar og hljómsveit. Verkið var frumflutt í Hofi á Akureyri, leikið aftur í Þórshöfn í Færeyjum og kom út á plötu í lok árs 2019. Hann leikur á gítar í djasskvintettinum Annes. Lag hans Henrik af plötunni Annes var valið tónverk ársins í djassi. Lag hans Wandering Beings hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónverk ársins í opnum flokki, og samnefnd plata, sem kom út árið 2024, var valin plata ársins í opnum flokki.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur

  • Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson

    Davíð Þór Jónsson

    Píanóleikari

    Næst: 5. des.

  • Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson

    Haukur Gröndal

    Klarínettu- og saxófónleikari

    Næst: 2. des.

  • Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson

    Matthías MD Hemstock

    Trommuleikari

    Næst: 2. des.

  • Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson

    Ólafur Jónsson

    Saxófónleikari

    Næst: 2. des.