Klarínettu- og saxófónleikari
Haukur Gröndal
Saxófón- og klarínettuleikari, tónskáld og útsetjari, fæddur árið 1975. Hann nam við Tónlistarskóla Garðabæjar og Tónlistarskóla FÍH, þaðan sem hann lauk burtfararprófi vorið 1997. Haustið 1999 hóf hann nám við Rytmisk Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn og lauk þaðan meistaraprófi í saxófónleik árið 2004. Frá 2006 hefur hann farið margar námsferðir til Búlgaríu, Makedóníu og Tyrklands og lært þjóðlega tónlist svæðisins hjá Petko Radev og fleirum, og vorið 2016 lauk hann framhaldsprófi í klassískum klarínettuleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hann hefur leikið í Stórsveit Reykjavíkur, með hléum, frá 1994, sem lausamaður með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og í söngleikjum á borð við Söngvaseið, Mary Poppins og Billy Elliot. Hann hefur komið fram á hátíðum víða um Evrópu, meðal annars London Jazz Festival, Moers Festival og WOMEX. Í ársbyrjun 2010 stofnaði hann Frelsissveit Íslands, sem hann semur og útsetur fyrir, og frá 2003 hefur hann rekið plötuútgáfuna Rodent. Á Íslensku tónlistarverðlaununum hefur hann tvisvar átt tónverk ársins í djassi, Pétur og úlfurinn… en hvað varð um úlfinn? og Four Elements, og árið sem síðara verkið var valið var hann einnig valinn flytjandi ársins í djassi. Hann kennir á klarínett við Menntaskóla í tónlist og skipuleggur tónleika Múlans ásamt Ólafi Jónssyni.
Framundan

Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett kynnir nýja plötu
Björtuloft, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
5.200 kr.≈ 38 EUR≈ 41 $≈ 60 CAD≈ 32 GBP≈ 283 DKK
Aðrir flytjendur
Saman á sviði: Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett kynnir nýja plötu
Ólafur Jónsson
Saxófónleikari
Næst: 2. des.
Saman á sviði: Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett kynnir nýja plötu
Matthías MD Hemstock
Trommuleikari
Næst: 2. des.