← Allir listamenn

Saxófónleikari

Ólafur Jónsson

Saxófónleikari, fæddur í Reykjavík árið 1967. Hann hóf tónlistarnám níu ára á klarínett í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar, fyrst hjá Einari Jóhannessyni og síðar Guðna Franzsyni, og árið 1983 hóf hann saxófónnám við Tónlistarskóla FÍH. Frá 1989 nam hann við Berklee College of Music í Boston hjá Bill Pierce, Joe Viola og George Garzone og lauk þaðan BM-prófi vorið 1992. Veturinn eftir var hann í einkanámi hjá George Coleman og Joe Lovano í New York. Hann hefur kennt frá 1993 við Tónlistarskóla FÍH og Tónskóla Sigursveins og kennir saxófónleik og fræðigreinar við Menntaskóla í tónlist. Hann hefur verið fastur liðsmaður í Stórsveit Reykjavíkur frá 1994 og leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og í leikhúsum. Frá 2008 hafa hann og bróðir hans, bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson, leikið saman í tríóinu Jónsson & More, og fyrsta plata tríósins, No Way Out, kom út árið 2015. Fyrsta platan í hans eigin nafni, Tími til kominn, kom út árið 2017 eftir tuttugu ára aðdraganda og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna, bæði platan og tónsmíðarnar á henni.

Framundan

Aðrir flytjendur

  • Saman á sviði: Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett kynnir nýja plötu

    Haukur Gröndal

    Klarínettu- og saxófónleikari

    Næst: 2. des.

  • Saman á sviði: Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett kynnir nýja plötu

    Matthías MD Hemstock

    Trommuleikari

    Næst: 2. des.

  • Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson

    Óskar Guðjónsson

    Saxófónleikari

  • Saman á sviði: Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett kynnir nýja plötu

    Þorgrímur Jónsson

    Bassaleikari

    Næst: 2. des.