Saxófónleikari
Óskar Guðjónsson
Saxófónleikari, fæddur í Garðabæ árið 1974 og alinn þar upp. Hann lærði á saxófón frá ellefu ára aldri hjá Kristjáni Stefánssyni og Knúti Birgissyni og lauk prófi frá Tónlistarskóla FÍH árið 1997. Þar voru Sigurður Flosason, Hilmar Jensson og Tómas R. Einarsson meðal kennara hans. Djasssögu lærði hann hjá Jóni Múla Árnasyni, sem Múlinn heitir eftir. Fyrsta plata hans, Far, kom út sama haust. Á henni eru átta lög eftir hann, hljóðrituð á fjórum dögum í Ingjaldshólskirkju á Snæfellsnesi með Skúla Sverrissyni, Hilmari Jenssyni og Matthíasi M.D. Hemstock. Hann lék í Mezzoforte, á þremur plötum sveitarinnar og á meira en tvö hundruð tónleikum í fjórum heimsálfum. Árið 2008 var hann einn stofnenda ADHD, þar sem hann leikur með bróður sínum, gítarleikaranum Ómari Guðjónssyni. Með Skúla Sverrissyni gerði hann plöturnar Eftir þögn árið 2002 og The Box Tree árið 2012, sem báðar hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin, og með Eyþóri Gunnarssyni plötuna Keldulandið með lögum Jóns Múla. Hann leikur einnig í kvartettinum MOVE, sem kom fyrst saman árið 2017, og í dansk-íslenska tríóinu NOR með bassaleikaranum Richard Andersson. Með píanóleikaranum Magnúsi Jóhanni gerði hann plötuna Fermented Friendship. Á Íslensku tónlistarverðlaununum var hann valinn blásturshljóðfæraleikari ársins 1995, 1996 og 1997 og flytjandi ársins í djassi 1997 og 2024.
Framundan
Ekkert framundan.
Aðrir flytjendur
Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson
Haukur Gröndal
Klarínettu- og saxófónleikari
Næst: 2. des.
Saman á sviði: Frelsissveit Íslands og Davíð Þór Jónsson
Matthías MD Hemstock
Trommuleikari
Næst: 2. des.