Allir viðburðir

Gala

Sígild jól

Teikning af logandi kerti í einföldum stjaka, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Sígild jól eru haldin í tíunda sinn, og af því tilefni semur Bára Grímsdóttir nýtt jólalag fyrir tónleikana. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir messósópran er listrænn stjórnandi og syngur ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópran og Gissuri Páli Gissurarsyni tenór. Með þeim leika Tómas Guðni Eggertsson á orgel og píanó, Hjörleifur Valsson á fiðlu og Júlía Mogensen á selló. Efnisskráin er að mestu sígild og í henni eru bæði íslenskir og erlendir jólasöngvar og sálmar, með ívafi af djassi og dægurlögum. Kirkjan opnar hálftíma fyrir tónleikana og sætaval er frjálst. Miðinn kostar 9.800 krónur.

Flytjendur