← Allir listamenn

Sellóleikari

Júlía Mogensen

Íslenskur sellóleikari og flytjandi sem fæst jafnt við klassík og nýja tilraunakennda tónlist. Hún lærði við Listaháskóla Íslands og lauk framhaldsnámi við Guildhall School of Music & Drama í London og í Berlín. Á árunum 2013 til 2019 var hún meðlimur Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku óperunnar. Vorið 2013 stofnaði hún ásamt Guðrúnu Dalíu Salómonsdóttur píanóleikara, Ingrid Karlsdóttur fiðluleikara og Grími Helgasyni klarínettuleikara kvartettinn KÚBUS, sem leggur áherslu á samstarf við listafólk úr öðrum listgreinum og óhefðbundnar uppsetningar. Hún lagði stund á myndlistarnám við Listaháskóla Íslands árin 2019 til 2020, þar sem hún kannaði tengsl flytjanda, áhorfanda og hljóðfæris í gegnum ólíka miðla. Júlía hefur komið fram og tekið upp með Björk, Sigur Rós, Damien Rice og Curious Chamber Players, og tekið þátt í flutningi kammeróperu Önnu Halldórsdóttur, Ástin ein taugahrúga – enginn dans við Ufsaklett, með mezzosópransöngkonunni Tinnu Þorvalds Önnudóttur.

Framundan

Aðrir flytjendur