Organisti og píanóleikari
Tómas Guðni Eggertsson
Íslenskur organisti og píanóleikari, fæddur árið 1974. Hann lauk prófi í píanóleik frá Nýja tónlistarskólanum undir handleiðslu Vilhelmínu Ólafsdóttur vorið 1996 og hélt síðan til framhaldsnáms við Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow, þar sem hann lauk BA-prófi árið 1999 og framhaldsnámi ári síðar. Haustið 2003 hóf hann nám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar, þar sem Björn Steinar Sólbergsson var aðalkennari hans í orgelleik, og lauk þaðan einleiksáfanga í orgelleik vorið 2007 og kantorsprófi vorið eftir. Tómas hefur starfað sem organisti í Grundarfirði, Stykkishólmi og Grindavík, en er nú organisti og tónlistarstjóri Seljakirkju í Reykjavík. Hann hefur unnið náið með tónlistarfólki á borð við Dimitri Ashkenazy, Ólaf Kjartan Sigurðarson, Þóru Einarsdóttur og Davíð Þór Jónsson, auk þess að stýra kórum, skipuleggja söngvahátíðir og semja og útsetja tónlist.
Framundan
Used with permission of Sigríður Ósk KristjánsdóttirErtu búin/n að Bach-a fyrir jólin?
Hallgrímskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
3.200 kr.≈ 23 EUR≈ 26 $≈ 37 CAD≈ 20 GBP≈ 174 DKK
Aðrir flytjendur

Saman á sviði: Sígild jól
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
Mezzósópran
Næst: 4. des.
Used with permission of Sigríður Ósk Kristjánsdóttir



