Kammertónlist
Camerarctica leikur kvintetta eftir Mozart og Brahms
Umsjón: Camerarctica

Camerarctica leikur kvintetta eftir Mozart og Brahms. Fyrst hljómar Allegro-þáttur Mozarts í B-dúr fyrir klarínettu og strengjakvartett og síðan Strengjakvintett hans í g-moll, KV 516, frá vorinu 1787, þar sem önnur víóla bætist við og dýpkar miðjuna í hljómnum. Eftir hlé kemur Klarínettukvintett Brahms í h-moll, op. 115, sem hann samdi sumarið 1891 eftir að hafa heyrt klarínettuleikarann Richard Mühlfeld leika. Hópurinn heldur ár hvert kertaljósatónleika með tónlist Mozarts í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu fyrir jól. Ármann Helgason leikur á klarínettu, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir á fiðlu, Svava Bernharðsdóttir og Guðrún Þórarinsdóttir á víólu og Sigurður Halldórsson á selló. Tónleikarnir taka um eina og hálfa klukkustund með hléi.
Efnisskrá
- Wolfgang Amadeus MozartAllegro í B-dúr fyrir klarínettu og strengjakvartett, KV 516c
- Wolfgang Amadeus MozartStrengjakvintett nr. 4 í g-moll, KV 516
- Johannes BrahmsKlarínettukvintett í h-moll, op. 115
Flytjendur
- Camerarcticakammerhópur
- Ármann Helgasonklarínetta
- Hildigunnur Halldórsdóttirfiðla
- Bryndís Pálsdóttirfiðla
- Svava Bernharðsdóttirvíóla
- Guðrún Þórarinsdóttirvíóla
- Sigurður Halldórssonselló