Kirkja · Höfuðborgarsvæðið, Kópavogur
Kópavogskirkja
Áskrift að dagatali
Allir tónleikar á þessum stað fara í dagatalið þitt. Það sem bætist við síðar kemur sjálfkrafa, þótt sum dagatöl líti aðeins inn nokkrum sinnum á dag.
Kópavogskirkja stendur í Borgum á Borgarholti á friðuðu svæði. Hún var reist á árunum 1958 til 1962 eftir teikningum frá embætti húsameistara ríkisins undir stjórn Harðar Bjarnasonar. Ragnar Emilsson arkitekt vann þar mikið að teikningunum. Sigurbjörn Einarsson biskup vígði kirkjuna 16. desember 1962. Hún er krosskirkja og að því leyti hefðbundin, en bogarnir gefa henni svip. Gerður Helgadóttir gerði steindu gluggana og verkstæði Oidtmann-bræðra í Þýskalandi smíðaði þá. Altaristafla Steinunnar Þórarinsdóttur var sett upp árið 1990 og sýnir Krist þvo fætur lærisveinanna. Á prédikunarstólnum eru fjórar myndir úr messing eftir Barböru Árnason, tákn guðspjallamannanna. Orgelið er frá P. Bruhn & Søn. Það hefur þrjátíu og eina rödd á þremur nótnaborðum og var vígt 12. janúar 1997.
Staðsetning
- Heimilisfang
- Hamraborg 2200 Kópavogur
- Vefur
- kopavogskirkja.is ↗
Orgel
- Smiður
- P. Bruhn & Søn
- Smíðað
- 1997
- Raddir
- 31
Framundan
Mozart við kertaljós
Kópavogskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Kópavogur
3.500 kr.≈ 26 EUR≈ 28 $≈ 40 CAD≈ 21 GBP≈ 191 DKK






