Sellóleikari
Sigurður Halldórsson
Sellóleikari, fæddur árið 1963, sem nam hjá Gunnari Kvaran við Tónlistarskólann í Reykjavík og hjá Raphael Sommer við Guildhall School of Music and Drama í London, þar sem hann lærði einnig söng og kammertónlist og var í námsbrautinni Performance and Communication Skills. Hann leikur tónlist frá miðöldum til samtímans, á upprunaleg hljóðfæri jafnt sem nútímaleg, og spinnur. Hann leikur með Caput og Camerarctica, syngur með Voces Thules, sem flytur íslenska miðaldatónlist, og stofnaði barokkhópinn Symphonia angelica. Um árabil lék hann með hollenska fiðluleikaranum Jaap Schröder í Bachsveitinni í Skálholti og Skálholtskvartettinum. Sumarið 2000 lék hann allar einleikssvítur Bachs á Sumartónleikum í Skálholtskirkju. Listrænn stjórnandi tónleikanna var hann frá 2004 til 2014. Með píanóleikaranum Daníel Þorsteinssyni hefur hann leikið í meira en þrjá áratugi. Hann var einn stofnenda 15:15-tónleikaraðarinnar árið 2002. Hann hefur starfað við Listaháskóla Íslands frá 2008, fyrst sem fagstjóri alþjóðlega meistaranámsins NAIP, var ráðinn prófessor við tónlistardeildina haustið 2017 og stjórnar kór skólans.
Framundan
Mozart við kertaljós
Hvalsneskirkja, Suðurnes, Hvalsnes
3.500 kr.≈ 26 EUR≈ 28 $≈ 40 CAD≈ 21 GBP≈ 191 DKK
Mozart við kertaljós
Hafnarfjarðarkirkja, Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður
3.500 kr.≈ 26 EUR≈ 28 $≈ 40 CAD≈ 21 GBP≈ 191 DKK
Mozart við kertaljós
Kópavogskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Kópavogur
3.500 kr.≈ 26 EUR≈ 28 $≈ 40 CAD≈ 21 GBP≈ 191 DKK
Mozart við kertaljós
Garðakirkja, Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
3.500 kr.≈ 26 EUR≈ 28 $≈ 40 CAD≈ 21 GBP≈ 191 DKK
Mozart við kertaljós
Dómkirkjan í Reykjavík, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
3.500 kr.≈ 26 EUR≈ 28 $≈ 40 CAD≈ 21 GBP≈ 191 DKK



