Víóluleikari
Svava Bernharðsdóttir
Víóluleikari sem lærði fyrst á fiðlu, meðal annars hjá Gígju Jóhannsdóttur og Rut Ingólfsdóttur, og lauk burtfararprófi í víóluleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1982. Hún nam síðan í Illinois hjá John Kendall, í Hollandi hjá Nobuko Imai og í New York hjá William Lincer og Karen Tuttle og lauk doktorsprófi frá Juilliard-skólanum árið 1989, með lokaverkefni um sögu og þróun íslensks fiðlu- og víóluleiks. Í Juilliard vann hún víólukeppni skólans og lék Der Schwanendreher eftir Hindemith með hljómsveit hans. Í Basel lagði hún síðan stund á leik á upprunaleg hljóðfæri við Schola Cantorum Basiliensis. Hún var aðstoðarleiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands veturinn 1993 til 1994 og gegndi sömu stöðu í Slóvensku fílharmóníunni frá 1994 til 2006, þar sem hún lék víólukonsert Bartóks með hljómsveitinni. Í Ljubljana leiddi hún einnig víólur strengjasveitar Fílharmóníunnar og nútímatónlistarhópsins Osterc og var dósent í víóluleik við tónlistarakademíuna. Hún hefur búið á Íslandi frá 2006, er fastráðin í Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennir við Listaháskólann og Tónlistarskóla Kópavogs. Hún lék fyrst á Sumartónleikum í Skálholti árið 1983. Með dóttur sinni, Rannveigu Mörtu Sarc fiðluleikara, skipar hún Dúó Freyju, sem hefur pantað og frumflutt verk fyrir fiðlu og víólu eftir íslensk tónskáld. Leik hennar má heyra á plötunum Svaviola og Svaviola II.

Framundan

Camerarctica leikur kvintetta eftir Mozart og Brahms
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
3.900 kr.