Fiðluleikari
Hildigunnur Halldórsdóttir
Fiðluleikari, fædd árið 1966, sem hóf tónlistarnám átta ára í Tónlistarskóla Garðabæjar og lærði síðan í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Kennarar hennar í Tónlistarskólanum í Reykjavík voru Guðný Guðmundsdóttir og Mark Reedman. Hún lauk þaðan einleikaraprófi árið 1987 og meistaraprófi frá Eastman School of Music í Rochester árið 1992. Sama ár var hún ráðin aðstoðarleiðari annarrar fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Því starfi gegndi hún um árabil en leikur nú í fyrstu fiðlu. Hún hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur og kammertónlist með Caput, Camerarctica og Contrasti. Hún var konsertmeistari hljómsveitar Íslensku óperunnar í Töfraflautunni í Gamla bíói og hljómsveitar Íslenska dansflokksins í Coppelíu í Borgarleikhúsinu. Á barokkfiðlu leikur hún í Bachsveitinni í Skálholti, Camerata Drammatica, Reykjavík barokk og Symphonia angelica. Hún lauk einnig lokaprófi í söng frá Tónskóla Sigursveins vorið 2003, hefur sungið í Hljómeyki og Schola cantorum og syngur nú í Kór Breiðholtskirkju. Með félögum sínum í Camerarctica hefur hún leikið alla strengjakvartetta Bartóks og þrettán af fimmtán kvartettum Shostakovitsj á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins.

Framundan

Camerarctica leikur kvintetta eftir Mozart og Brahms
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
3.900 kr.