← Allir listamenn

Camerarctica

Kammerhópur, stofnaður árið 1992. Hljóðfæraskipan hans er flauta, klarínetta, óbó, fagott, semball og strengjakvartett og efnisskráin nær frá klassíska tímanum til samtímans. Hópurinn hefur staðið að tónlistarhátíðum og tekið þátt í þeim, meðal annars hátíðum í minningu Hindemiths, Faurés, Schuberts og Brahms, Myrkum músíkdögum, Listahátíð í Reykjavík og Norrænum músíkdögum, og frumflutt fjölda verka eftir íslensk tónskáld. Með Norræna húsinu hefur hann staðið fyrir árlegri hátíð, Norrænum sumartónum, þar sem leikin eru verk íslenskra og annarra norrænna tónskálda. Hann hefur komið fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins á hverju ári frá 1997 og flutt þar alla strengjakvartetta Bartóks og þrettán af fimmtán strengjakvartettum Shostakovitsj. Á aðventu hefur hann frá árinu 1993 haldið tónleikana Mozart við kertaljós í kirkjum og að venju lokið þeim með jólasálminum Í dag er glatt í döprum hjörtum. Hann hefur hljóðritað tvo geisladiska með tónlist Mozarts.

Framundan

Aðrir flytjendur