← Allir listamenn

Fiðluleikari

Bryndís Pálsdóttir

Fiðluleikari, fædd árið 1963, sem hóf fiðlunám hjá Katrínu Árnadóttur í Barnamúsíkskóla Reykjavíkur og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1984. Kennarar hennar þar voru Björn Ólafsson, Guðný Guðmundsdóttir og Mark Reedman. Hún nam síðan við Juilliard-skólann í New York hjá Dorothy DeLay, Hyo Kang og Zinaidu Gilels og lauk þaðan meistaraprófi árið 1988. Veturinn eftir lærði hún hjá Herman Krebbers í Amsterdam. Hún hefur verið fastráðin í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 1989 og kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík frá sama tíma. Frá 2015 til 2019 sat hún í stjórn hljómsveitarinnar. Hún hefur leikið einleik með hljómsveitinni og haldið einleikstónleika. Með strengjakvartett Camerarctica hefur hún flutt strengjakvartetta Bartóks og Shostakovitsj á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins. Með óbókvartettinum Dísum hefur hún frumflutt fjölda verka eftir íslensk tónskáld. Hún hefur einnig leikið með Kammersveit Reykjavíkur og Caput, í sýningum Þjóðleikhússins og í hljómsveit Íslensku óperunnar.

Bryndís Pálsdóttir gengur baksviðs með fiðlu.

Framundan