Falstaff er síðasta ópera Verdis, frumsýnd í La Scala í Mílanó árið 1893, og hefur aldrei áður verið sett á svið hér á landi. Hún er jafnframt fyrsta stóra uppfærsla Óperunnar, sem stofnuð var með lögum árið 2025 sem hluti af Þjóðleikhúsinu. Arrigo Boito sótti Falstaff í gamanleik Shakespeares, Vindsórkonurnar kátu, og fléttaði inn línum úr Hinriki IV. Í óperunni sendir aldraður og auralaus riddari tveimur giftum konum sama ástarbréfið, með augastað á fé eiginmanna þeirra. Konurnar bera saman bréfin og leika á hann: honum er sturtað í Thames ofan í þvottakörfu og um miðnætti ráðast að honum bæjarbúar í gervi álfa. Að lokum syngur allur hópurinn fúgu um að allt í heiminum sé grín. Sungið er á íslensku í nýrri þýðingu Sólveigar Sigurðardóttur og Þórhalls Auðs Helgasonar. Ólafur Kjartan Sigurðarson, sem hefur sungið Niflungahringinn í Bayreuth, fer með titilhlutverkið, einn af tíu einsöngvurum, og með þeim eru kór og fullskipuð hljómsveit undir stjórn Alexanders Joel. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir. Uppfærslan er sú fyrsta sem Óperan vinnur í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Flytjendur
- Ólafur Kjartan SigurðarsonFalstaff
- Kristján JóhannessonFord
- Kristín Einarsdóttir MäntyläAlice
- Álfheiður Erla GuðmundsdóttirNannetta
- Harpa Ósk BjörnsdóttirNannetta
- Hildigunnur EinarsdóttirQuickly
- Karin Björg TorbjörnsdóttirMeg
- Gunnar Björn JónssonFenton
- Þorsteinn Freyr SigurðssonCajus
- Eggert Reginn KjartanssonBardolfo
- Ragnar Pétur JóhannssonPistola
- Alexander Joelhljómsveitarstjóri
- Brynhildur Guðjónsdóttirleikstjóri
Fleira framundan
Sami flytjandi: Eggert Reginn Kjartansson
Vínartónleikar
Eldborg, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Frá 4.100 kr.≈ 30 EUR≈ 33 $≈ 47 CAD≈ 25 GBP≈ 223 DKK
Sami flytjandi: Hildigunnur Einarsdóttir
Fjórir söngvarar syngja lög Gylfa Þ. Gíslasonar
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
4.900 kr.≈ 36 EUR≈ 39 $≈ 56 CAD≈ 30 GBP≈ 267 DKK

Sami flytjandi: Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
Jólatónleikar með Anne Sofie von Otter
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Frá 9.990 kr.≈ 73 EUR≈ 80 $≈ 114 CAD≈ 61 GBP≈ 544 DKK
Sami flytjandi: Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
Jólatónleikar Sinfóníunnar
Eldborg, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Frá 4.100 kr.≈ 30 EUR≈ 33 $≈ 47 CAD≈ 25 GBP≈ 223 DKK



