Allir listamenn

Barítón

Kristján Jóhannesson

Hann er barítónsöngvari, fæddur í Reykjavík árið 1992. Hann hóf söngnám við Söngskóla Sigurðar Demetz árið 2008, þar sem kennarar hans voru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Kristján Jóhannsson og Keith Reed. Árið 2014 fluttist hann til Vínarborgar til framhaldsnáms hjá Uta Schwabe. Á námsárunum söng hann Nautabanann í Carmen hjá Íslensku óperunni og tók þátt í I Puritani eftir Bellini í Hofi á Akureyri með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Árið 2017 hóf hann störf við Theater an der Wien og Kammeroper í Vínarborg, þar sem hann tók meðal annars þátt í Niflungahring Wagners og Salome eftir Richard Strauss. Frá árinu 2021 hefur hann verið fastráðinn í St. Gallen í Sviss og sungið þar meðal annars í Requiem Verdis, Elektru og Töfraflautunni.

Framundan