Sópran
Harpa Ósk Björnsdóttir
Sópransöngkona búsett í Basel og meðlimur í OperAvenir, söngvarahópi Theater Basel, frá árinu 2024. Á starfsárinu 2025/26 söng hún meðal annars Paminu í Töfraflautunni og Carmina Burana eftir Orff með Sinfóníuhljómsveitinni í Basel. Hún hefur sungið Woglinde í Ragnarökum Wagners við Bühnen Bern, komið fram á Oper Leipzig með Gewandhaus-hljómsveitinni og á Oper Halle með Staatskapelle Halle. Hún þreytti frumraun sína hjá Íslensku óperunni sem Barbarina í Brúðkaupi Fígarós, var meðal sigurvegara í Ungum einleikurum, keppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands, og hlaut titilinn Rödd ársins 2019 í háskólaflokki Vox Domini. Hún nam við óperudeild Bayerische Theaterakademie August Everding í München og við Felix Mendelssohn-tónlistarháskólann í Leipzig, og lauk auk þess BS-prófi í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands.

Framundan



