← Allir listamenn
Tenór
Gunnar Björn Jónsson
Tenór sem hóf söngnám við Tónlistarskólann á Akureyri árið 2008 hjá Michael Clarke, hélt þaðan til Kristjáns Jóhannssonar við Söngskóla Sigurðar Demetz og útskrifaðist þar vorið 2014. Um haustið fór hann til Mílanó og nam í tvö ár við Civica Scuola di Musica Claudio Abbado hjá Vincenzo Manno. Hann hefur sungið óperuhlutverk á Íslandi, í Þýskalandi og á Ítalíu, meðal annars Elvino í La sonnambula, Alfredo í La traviata, Edgardo í Lucia di Lammermoor og Nemorino í Ástardrykknum, og hann hefur sungið tenórhlutverkið í níundu sinfóníu Beethovens með Sinfóníuhljómsveit Íslands.





