← Allir listamenn

Bassi

Ragnar Pétur Jóhannsson

Bassasöngvari sem nam við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Hlín Pétursdóttur Behrens frá 2014 til 2017 og við Listaháskóla Íslands frá 2018 hjá Kristni Sigmundssyni, Þóru Einarsdóttur, Dísellu Lárusdóttur og Hönnu Dóru Sturludóttur. Á námsárunum söng hann í þremur óperum eftir Þórunni Guðmundsdóttur og í Trouble in Tahiti eftir Bernstein. Hann söng skarfinn í óperunni Fuglabjarginu í Borgarleikhúsinu árið 2021, Dulcamara í uppfærslu sviðslistahópsins Óðs á Ástardrykknum og garðyrkjumanninn Antonio í Brúðkaupi Fígarós hjá Kammeróperunni árið 2025. Hann syngur í rakarakvartettinum Barbara, sem hlaut bronsverðlaun á Norðurlandamóti rakarasöngvara árið 2023, hefur sungið bassa með karlasönghópnum Kyrju og er frá árinu 2025 í alþjóðlega söngflokknum M'ANAM.

Framundan

Sviðsett ópera

Falstaff

Eldborg, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík

Frá 6.900 kr.≈ 50 EUR≈ 55 $≈ 79 CAD≈ 42 GBP≈ 376 DKK

Aðrir flytjendur