Sópran
Kristín Einarsdóttir Mäntylä
Sópransöngkona sem ólst upp í kórastarfi Langholtskirkju og söng með Graduale Nobili inn á Biophiliu Bjarkar og á tveggja ára tónleikaferðalagi um heiminn sem fylgdi plötunni. Hún lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík hjá Hörpu Harðardóttur og nam síðan við Tónlistarháskólann í Leipzig hjá Brigitte Wohlfarth og Reginu Werner-Dietrich, lauk þaðan Meisterklasse-prófi árið 2024 og var aðstoðarkennari Wohlfarth frá 2022 til 2024. Hún hefur sungið við óperuhús víða í Þýskalandi, meðal annars í Leipzig, Gera, Altenburg og Brandenburg, og árið 2025 söng hún Marie í Wozzeck eftir Alban Berg í Würzburg og Dessau og aðalhlutverkið í samtímaóperunni Svadba í Bonn. Sama ár söng hún Elle í Mannsröddinni eftir Poulenc í Hörpu og Judith í Kastala Bláskeggs eftir Bartók í Leipzig. Hún hlaut verðlaunin Junge Stimmen Leipzig árið 2016.





