← Allir listamenn

Mezzósópran

Hildigunnur Einarsdóttir

Mezzósópran sem lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Signýju Sæmundsdóttur og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi og Hollandi hjá Janet Williams og Jóni Þorsteinssyni. Hún lauk einnig BA-prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands og nam þar söng hjá Hlín Pétursdóttur Behrens. Hún syngur með Schola cantorum, Cantoque Ensemble og Kór Íslensku óperunnar, stjórnar ÁR kórnum og Kvennakórnum Kötlu ásamt Lilju Dögg Gunnarsdóttur og kennir söng við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann Domus Vox. Hún hefur sungið einsöngshlutverkin í Messíasi og Judas Maccabeus eftir Händel og í Mattheusarpassíu, Jóhannesarpassíu og Jólaóratoríu Bachs, sungið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Barokksveitinni Brák, Caput og Kammersveit Reykjavíkur og frumflutt verk eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur, Kolbein Bjarnason og Huga Guðmundsson. Árið 2014 var hún tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir söng sinn á lögum Karls O. Runólfssonar með kammerhópnum Kúbus.

Hildigunnur Einarsdóttir með sítt hár, svarthvít mynd.

Framundan

Teikning af djúpri þvottakörfu úr tágum með tveimur höldum, hlaðinni krumpuðu líni sem flæðir yfir brúnina, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.
19:30Sviðsett ópera

Falstaff

Eldborg, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík

Frá 6.900 kr.

Teikning af djúpri þvottakörfu úr tágum með tveimur höldum, hlaðinni krumpuðu líni sem flæðir yfir brúnina, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.
16:00Sviðsett ópera

Falstaff

Eldborg, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík

Frá 6.900 kr.