Kammertónlist
Kammermúsíkklúbburinn: Minningar og meistaraverk
Umsjón: Kammermúsíkklúbburinn

Kammermúsíkklúbburinn heldur upp á sjötugasta starfsár sitt. Á öðrum tónleikum vetrarins hljóma tvö strengjatríó frá 20. öld. Gideon Klein samdi sitt árið 1944 í fangabúðunum í Theresienstadt og lauk því fáeinum dögum áður en hann var fluttur til Auschwitz. Alfred Schnittke tileinkaði sitt Alban Berg árið 1985, þegar hundrað ár voru liðin frá fæðingu hans. Á milli þeirra er Dúó Jóns Nordal fyrir fiðlu og selló frá 1983 og eftir hlé Strengjakvintett nr. 2 í G-dúr eftir Brahms, eitt af síðustu kammerverkum hans. Sigurbjörn Bernharðsson, prófessor í fiðluleik við Oberlin-háskóla í Bandaríkjunum, lék í sautján ár í Pacifica-strengjakvartettinum. Með honum leika Gunnhildur Daðadóttir á fiðlu, Þórunn Ósk Marínósdóttir og Rita Porfiris á víólu og Sigurður Bjarki Gunnarsson og Bryndís Halla Gylfadóttir á selló.
Efnisskrá
- Gideon KleinStrengjatríó (1944)
- Jón NordalDúó fyrir fiðlu og selló (1983)
- Alfred SchnittkeStrengjatríó (1985)
- Johannes BrahmsStrengjakvintett nr. 2 í G-dúr, op. 111