Sellóleikari
Sigurður Bjarki Gunnarsson
Sellóleikari sem hefur leikið í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2002. Hann hóf sellónám sjö ára hjá Ólöfu Sesselju Óskarsdóttur í Tónmenntaskóla Reykjavíkur, lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995 hjá Gunnari Kvaran, bakkalárprófi frá Manhattan School of Music árið 1998 hjá David Soyer og meistaraprófi frá Juilliard-skólanum árið 2000 hjá Harvey Shapiro. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sumida Triphony Hall-hljómsveitinni í Tókýó og Kammersveit Reykjavíkur og hefur um árabil starfað bæði með Kammersveitinni og Caput. Hann er einn stofnenda Strokkvartettsins Sigga, sem hefur tvisvar hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin og leikið inn á plötur fyrir Deutsche Grammophon og Sono Luminus. Hann hefur verið listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar ásamt Þórunni Ósk Marínósdóttur og kennir á selló og kammertónlist við Menntaskóla í tónlist og Listaháskóla Íslands.
Framundan
Ekkert framundan.
Umfjöllun
Reykholtshátíð
Kammertónlist hefur hljómað í Reykholtskirkju í Borgarfirði síðustu helgina í júlí ár hvert frá 1997.
Aðrir flytjendur

Saman á sviði: Kammermúsíkklúbburinn: Minningar og meistaraverk
Bryndís Halla Gylfadóttir
Sellóleikari
Næst: 14. feb.

Saman á sviði: Kammermúsíkklúbburinn: Minningar og meistaraverk
Þórunn Ósk Marínósdóttir
Víóluleikari
Næst: 7. feb.