Kammertónlist
Garður gleði og sorgar: flauta, víóla og harpa
Umsjón: Kammermúsíkklúbburinn

Stefán Ragnar Höskuldsson, fyrsti flautuleikari Berlínarfílharmóníunnar, leikur í fyrsta sinn á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins. Fyrir hlé leika hann, Þórunn Ósk Marínósdóttir á víólu og Katie Buckley, hörpuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, verk fyrir flautu, víólu og hörpu, samsetningu sem Claude Debussy var einna fyrstur til að skrifa fyrir, í sónötu sinni frá 1915. Á undan sónötunni hljóma kafli úr Garten von Freuden und Traurigkeiten eftir Sofiu Gubaidulinu frá 1980, sem ekki hefur heyrst hér áður, og Intermezzo úr Dimmalimm eftir Atla Heimi Sveinsson. Eftir hlé leika Stefán Ragnar og Katie Buckley konsert Mozarts fyrir flautu og hörpu frá 1778 með strengjakvartett, í útsetningu Bobs Litterell. Í kvartettinum eru Hulda Jónsdóttir og Sólveig Steinþórsdóttir á fiðlur, Þórunn Ósk á víólu og Steiney Sigurðardóttir á selló.
Efnisskrá
- Sofia GubaidulinaKafli úr Garten von Freuden und Traurigkeiten (1980), fyrir flautu, víólu og hörpu
- Atli Heimir SveinssonIntermezzo úr Dimmalimm
- Claude DebussySónata fyrir flautu, víólu og hörpu (1915)
- Wolfgang Amadeus MozartKonsert fyrir flautu og hörpu í C-dúr, K. 299/297c (1778), með strengjakvartett í útsetningu Bobs Litterell
Flytjendur
- Stefán Ragnar Höskuldssonflauta
- Katie Buckleyharpa
- Þórunn Ósk Marínósdóttirvíóla
- Hulda Jónsdóttirfiðla
- Sólveig Steinþórsdóttirfiðla
- Steiney Sigurðardóttirselló