Fiðluleikari
Gunnhildur Daðadóttir
Fiðluleikari í annarri fiðlu Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þar sem hún hefur verið staðgengill leiðara frá haustinu 2022. Hún hóf fiðlunám fimm ára hjá Lilju Hjaltadóttur og útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands hjá Guðnýju Guðmundsdóttur. Síðan nam hún hjá Pertti Sutinen og Réku Szilvay í Lahti í Finnlandi, lauk meistaranámi hjá Sigurbirni Bernharðssyni við Illinois-háskóla og diplómanámi hjá Aaron Berofsky við Michigan-háskóla árið 2012. Hún sigraði í Paul Rolland-fiðlukeppninni í Illinois. Að námi loknu hóf hún störf hjá Sinfóníuhljómsveitinni, leiddi aðra fiðlu starfsárið 2013–14 og var fastráðin árið 2015. Hún hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og leikur reglulega með Barokkbandinu Brák, SinfoniaNord og hljómsveit Íslensku óperunnar. Hún stofnaði kammerhópinn Jöklu ásamt Guðnýju Jónasdóttur sellóleikara og hefur setið í stjórn Reykjavík Early Music Festival frá stofnun hátíðarinnar.
Framundan
Ekkert framundan.
Aðrir flytjendur

Saman á sviði: Kammermúsíkklúbburinn: Minningar og meistaraverk
Bryndís Halla Gylfadóttir
Sellóleikari
Næst: 14. feb.

Saman á sviði: Kammermúsíkklúbburinn: Minningar og meistaraverk
Þórunn Ósk Marínósdóttir
Víóluleikari
Næst: 7. feb.
Saman á sviði: Kammermúsíkklúbburinn: Minningar og meistaraverk
Sigurður Bjarki Gunnarsson
Sellóleikari