Víóluleikari
Þórunn Ósk Marínósdóttir
Víóluleikari og leiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þar sem hún hefur verið fastráðin frá árinu 1998. Hún ólst upp á Akureyri og lærði þar á fiðlu, lengst af hjá Lilju Hjaltadóttur, og lauk meistaraprófi í víóluleik með láði frá Konunglega tónlistarháskólanum í Brussel árið 1996 hjá Ervin Schiffer. Í Belgíu leiddi hún víóludeild kammersveitarinnar Prima la Musica frá 1994 til 1997 og lék í I Fiamminghi undir stjórn Rudolfs Werthens og í strengjakvartett sem ferðaðist með danshópnum Rosas. Hún hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Caput og Sumida Triphony Hall-hljómsveitinni í Tókýó. Smekkleysa hefur gefið út einleik hennar í víólukonsertinum Ombra og Dagbókarbroti eftir Hafliða Hallgrímsson, og Veronique Vaka samdi fyrir hana víólukonsertinn Vanescere. Árið 2012 stofnaði hún Strokkvartettinn Sigga ásamt félögum sínum. Kvartettinn var valinn flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir árið 2018 og hlaut þau aftur fyrir hljóðritun sína á öllum strengjakvartettum Atla Heimis Sveinssonar. Hún hefur verið listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar ásamt Sigurði Bjarka Gunnarssyni og kennir við Menntaskóla í tónlist og Listaháskóla Íslands.

Framundan

Kammermúsíkklúbburinn fagnar sjötíu árum
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
5.500 kr.

Garður gleði og sorgar: flauta, víóla og harpa
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
5.500 kr.