Sellóleikari
Bryndís Halla Gylfadóttir
Sellóleikari sem hóf nám sex ára og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Gunnari Kvaran, eftir nám í tónlistarskólum á Íslandi og í Kanada. Hún nam síðan við New England Conservatory í Boston hjá Colin Carr og Laurence Lesser og lauk þaðan bakkalárgráðu árið 1987 og meistaragráðu árið 1989. Að námi loknu varð hún leiðari sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og gegndi þeirri stöðu til ársins 2014, og hún leikur enn í sellódeild hljómsveitarinnar. Hún hefur leikið einleik og kammertónlist hér heima og erlendis og leikið inn á fjölda hljóðritana. Hún hefur þrisvar hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin og hlaut Tónvakaverðlaun Ríkisútvarpsins, og árið 2011 var hún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar.

Framundan
Ekkert framundan.