
Kammermúsíkklúbburinn hélt fyrstu tónleika sína í Melaskóla 7. febrúar 1957. Á annað hundrað gestir heyrðu þá Erkihertogatríó Beethovens og, eftir hlé, Silungakvintett Schuberts, og sjötíu árum síðar, upp á dag, er sama efnisskrá leikin aftur. Árið 1957 léku Björn Ólafsson, konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Einar Vigfússon og Árni Kristjánsson tríóið, og Jón Sen og Erwin Köppen bættust við í kvintettinn. Nú leikur Ari Þór Vilhjálmsson, listrænn stjórnandi klúbbsins, á fiðlu, Þórunn Ósk Marínósdóttir á víólu, Sigurgeir Agnarsson á selló og Xun Yang á kontrabassa, en þau þrjú síðastnefndu leiða hvert sína deild í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ítalski píanóleikarinn Domenico Codispoti leikur á píanó. Tríóið er frá 1811 og kvintettinn frá 1819.
Efnisskrá
- Ludwig van BeethovenPíanótríó í B-dúr, op. 97, Erkihertogatríóið (1811)
- Franz SchubertPíanókvintett í A-dúr, D. 667, Silungakvintettinn (1819)
Flytjendur
- Ari Þór Vilhjálmssonfiðla
- Þórunn Ósk Marínósdóttirvíóla
- Sigurgeir Agnarssonselló
- Xun Yangkontrabassi
- Domenico Codispotipíanó