← Allir tónleikastaðir

Kirkja · Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík

Dómkirkjan í Reykjavík

Dómkirkjan var vígð árið 1796 og var fyrsta húsið sem reist var í Reykjavík af því að þar skyldi verða höfuðstaður landsins. A. Kirkerup teiknaði hana. Byggingin stóðst illa tímans tönn og var endurbyggð árið 1848 að forsögn L. A. Winstrup, sem hækkaði hana og bætti við kór, forkirkju og turni. Tæpri öld eftir vígsluna reis Alþingishúsið fast við kirkjuna, og þingmenn ganga þangað enn til messu við þingsetningu. Karl Schuke í Berlín smíðaði orgelið og það var vígt 1. desember 1985, 31 rödd á þremur hljómborðum. Fyrsta orgel kirkjunnar kom árið 1840 og var hið fyrsta sem kom í íslenska kirkju.

Dómkirkjan í Reykjavík í síðdegisbirtu, ljós framhlið með boga yfir dyrum og turn með klukku upp úr þakinu.
Mynd: Diego Delso · CC BY-SA 4.0

Staðsetning

Heimilisfang
Kirkjustræti101 Reykjavík

Orgel

Smiður
Karl Schuke
Smíðað
1985
Raddir
31

Heimsóknir

Utan tónleika
Opið gestum
Aðgengi
Hreyfihamlaðir ganga inn um dyr skrúðhússins. Framan við þær er skábraut og í anddyri skrúðhússins er lyftupallur fyrir hjólastóla, og gólf skrúðhússins er í sömu hæð og gólf kirkjunnar.

Framundan