Classical Iceland
Allir viðburðir

Kórtónlist

Sextíu ár Samkórs Kópavogs

Umsjón: Samkór Kópavogs

Samkór Kópavogs var stofnaður í október 1966 og fagnar sextíu árum með tónleikum í Háteigskirkju. Meðal stofnenda var Jan Morávek, tónlistarmaður af tékkneskum uppruna, sem stjórnaði kórnum fyrstur manna. Gestir kórsins eru feðginin Elmar Gilbertsson tenór og Alvilda Eyvör Elmarsdóttir sópran, sem stundar nú nám við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki. Á efnisskránni eru íslensk og erlend þjóðlög og sönglög ásamt þekktum atriðum úr óperum. Peter Máté leikur á píanó, og Lenka Mátéová stjórnar.

Flytjendur