← Allir listamenn
Kórstjóri
Lenka Mátéová
Lenka Mátéová fæddist í Tékkóslóvakíu. Hún lauk kantorsprófi frá tónlistarskólanum í Kroměříž og meistaraprófi frá Tónlistarakademíunni í Prag, vann til verðlauna heima fyrir á námsárunum og hefur leikið einleik víða um Evrópu. Hún hefur starfað á Íslandi frá 1990, fyrst á Stöðvarfirði, síðan sem kantor við Fella- og Hólakirkju frá 1993 til 2007 og við Kópavogskirkju frá 2007 til 2024. Hún hefur kennt orgelleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar og leikið með Karlakór Reykjavíkur, Drengjakór Reykjavíkur, Mótettukórnum, Hljómeyki og Samkór Kópavogs, á tónleikum, í útvarpi, í sjónvarpi og á hljómdiskum. Samkór Kópavogs, sem hún lék áður með, hefur hún stjórnað frá janúar 2024.
Framundan
Ekkert framundan.