← Allir listamenn

Samkór Kópavogs

Samkór Kópavogs var stofnaður 18. október 1966. Meðal stofnenda var Jan Morávek, sem stjórnaði kórnum þar til hann féll frá árið 1970; hann var af tékkneskum ættum en ólst upp í Vínarborg. Fyrsti formaður kórsins, Valur Fannar, var einnig einn stofnenda hans. Kórinn er blandaður og sækir félaga sína til Kópavogs og víðar af höfuðborgarsvæðinu. Hann heldur árlega tónleika í bænum og hefur sungið í öllum vinabæjum Kópavogs á Norðurlöndum. Sumarið 2016 fór hann vestur um haf í níu daga og söng á Íslendingahátíðinni í Mountain í Norður-Dakóta og á hátíðinni í Gimli í Manitoba. Þá hélt hann tónleika í Árborg og í Grundarkirkju í Argyle-héraði, þar sem enginn íslenskur kór hafði sungið fyrr. Félagar eru um fimmtíu og æfa í Digraneskirkju. Lenka Mátéová hefur stjórnað kórnum frá janúar 2024.

Framundan

Ekkert framundan.