Píanóleikari
Peter Máté
Peter Máté fæddist í Rožňava í Tékkóslóvakíu og er af ungverskum ættum. Hann hóf píanónám ungur og lauk meistaraprófi í einleik og kennslu frá Tónlistarakademíunni í Prag. Á námsárunum vann hann til verðlauna heima fyrir og síðar í alþjóðlegum keppnum, í Vercelli og Enna á Ítalíu árin 1986 og 1989. Hann hefur verið búsettur á Íslandi frá 1990. Hann hefur haldið einleikstónleika, leikið einleik með sinfóníuhljómsveitum og komið fram á kammertónleikum með Tríói Reykjavíkur og Kammertríói Kópavogs víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann hefur kennt meistaranámskeið við erlenda háskóla og setið í dómnefndum píanókeppna. Nokkrir hljómdiskar hafa komið út með leik hans. Hann hefur kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1993, gegnir prófessorsstöðu við Listaháskóla Íslands og hefur kennt við Menntaskóla í tónlist frá stofnun skólans.
Framundan
Ekkert framundan.