← Allir listamenn

Tenór

Elmar Gilbertsson

Elmar Gilbertsson útskrifaðist frá Söngskóla Sigurðar Demetz vorið 2007 og lauk meistaranámi í óperusöng við tónlistarháskólana í Amsterdam og Haag, þar sem kennarar hans voru Jón Þorsteinsson og Peter Nilson. Að námi loknu starfaði hann tvö ár í óperustúdíói Hollensku óperunnar og fékk síðan fasta stöðu við óperuna í Maastricht. Hann hefur sungið Tamínó í Töfraflautunni, Don Ottavio í Don Giovanni, Ferrando í Così fan tutte og hertogann af Mantúa í Rigoletto, og komið fram í óperuhúsum í Nantes, Toulon, Aix-en-Provence, Bochum, Brno og Amsterdam, auk Barbican-salarins í Lundúnum. Fyrir Daða Halldórsson í Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson hlaut hann Grímuna sem söngvari ársins 2014. Sama ár hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngvari ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar, og aftur hlaut hann þau fyrir Lenskí í Évgení Onegin hjá Íslensku óperunni haustið 2016. Frá 2018 hefur hann sungið með óperunni í Stuttgart, þar á meðal Mími í Rínargullinu, Narraboth í Salóme og Grigorí í Boris Godúnov.

Framundan