← Allir listamenn

Sópran

Alvilda Eyvör Elmarsdóttir

Alvilda Eyvör Elmarsdóttir er lýrísk sópransöngkona, fædd árið 2004. Hún hóf klassískt söngnám sextán ára við Menntaskóla í tónlist og útskrifaðist þaðan árið 2024 með viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á framhaldsprófi. Hún hefur sungið einsöng með Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og söng miðnæturmessuna í Hallgrímskirkju á aðfangadagskvöld 2023. Með Kammerkórnum Aurora kom hún fram í 98 sýningum á söngleiknum 9líf í Borgarleikhúsinu. Nú stundar hún nám við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki.

Framundan

Ekkert framundan.